Vel heppnuð Skólahreystiferð

Skapast hefur sú ferð að nýta Skólahreystiferðina til heimsókna 10. bekkjar nemenda í Mennta- og Verkmenntaskólann á Akureyri. Á meðan fóru hinir tveir bekkirnir í keilu. Keppnin sjálf hófst svo kl. 13 og studdu grænklæddir nemendur vel við bakið á keppendum með tilheyrandi bumbuslætti.  Að keppni lokinni gerðu nemendur sér glaðan dag á Glerártorgi og enduðu daginn á pizzuhlaðborði á Greifanum. Myndir eru á myndasíðu skólans.