Varmhlíðingur vann stóru upplestrarkeppnina

Fyrstu verðlaun hlaut Jón Hjálmar Ingimarsson úr Varmahlíðarskóla, önnur verðlaun hlaut Eva María Rúnarsdóttir og þriðju verðlaun hlaut Helena Erla Árnadóttir en þær koma báðar úr Árskóla. Einnig hlaut Hafsteinn Máni Björnsson úr Varmahlíðarskóla aukaverðlaun fyrir jafnan og góðan lestur.