Upplestrarhátíð 7. bekkjar Varmahlíðarskóla

Þann 10. mars s.l. kepptu nemendur í 7. bekk sín á milli í Upplestrarkeppni skólans sem er undankeppni Stóru Upplestrarkeppninnar. Alls voru keppendurnir sextán og komust fjórir í úrslit ásamt einum varamanni. Þau munu þau taka þátt fyrir hönd skólans í aðalkeppninni sem fram fer í bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þriðjudaginn 12. apríl n.k. Þeir sem komust áfram eru Jón Hjálmar Ingimarsson, Erna Sigurlilja Ólafsdóttir, Herdís Eir Sveinsdóttir, Hafsteinn Máni Björnsson og Sunna Sif Friðriksdóttir er til vara.