Þemavika í næstu viku

Dagarnir 26. - 28. maí eru þemadagar í skólanum. Þá verður dagskráin brotin upp og nemendum skipt í hópa. Heimaakstur verður kl. 13:20 þessa daga.  Á föstudaginn, síðasta skóladaginn, er vorhátíð og grill, en skólrútur fara heim kl. 12:00 þann dag. Sama kvöld kl. 20:00 eru svo skólaslit Varmahlíðarskóla.