Stórskemmtilegt í Kardemommubæ

Það voru nemendur 6. bekkjar sem fóru með aðalhlutverkin, ásamt nokkrum nemendum 5. bekkjar, en nemendur 1. til 4. bekkjar dönsuðu og sungu. Stefán R. Gíslason lék undir söng og á milli atriða.  Að sjálfsögðu voru teknar myndir, en myndasmiðir voru Stefanía Malen og Gréta María.