Ívar Elí er fimm ára Sauðkrækingur sem hefur glímt við ótilgreinda flogaveiki síðustu tvö ár. Í vetur þegar nemendur 7. og 8. bekkjar höfðu ákveðið að ráðast í áheitasöfnun, voru þau ekki lengi að stökkva að koma Ívari Elí til hjálpar. Þetta er í þriðja sinn sem 7 . og 8. bekkingar taka sig saman og hlaupa til styrktar góðu málefni, en í fyrri skiptin styrktu hóparnir krabbameinsfélag Skagafjarðar.