Söfnuðu 114 þúsund krónum handa barnahjálp ABC

,,Börn hjálpa börnum" er árlegt söfnunarstarf ABC   Að þessu sinni er verið að safna fyrir byggingu heimavistar fyrir fátækar stúlkur í Pakistan. Það er skemmst frá því að segja að söfnunin gekk vonum framar og voru krakkarnir verulega hissa á upphæðinni sem taldist upp úr baukunum.  Er öllum þeim sem lagði söfnuninni lið  færðar þakkir.