Skólasetning

Kennsla fyrir 2.-10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 27. ágúst en hjá 1. bekk hefst kennsla á föstudegi 28. ágúst. Nemendur 1. bekkjar og foreldrar mæta í viðtalstíma hjá umsjónarkennara á fimmtudag.

Við hlökkum til að sjá ykkur fersk og frísk og minnum á að hér á heimasíðunni er hægt að opna skóladagatal vetrarins og skoða innkaupalista fyrir nemendur.