Það er komið að því! Úrslitakeppni skólahreystis í Laugardalshöll fer fram í kvöld kl. 20:15. Viðburðurinn verður í beinni útsendingu á RÚV. Unglingar Varmahlíðarskóla halda suður yfir heiðar í dag til að fylgja þátttakendum og hvetja lið skólans til dáða. Litur skólans er grænn og með í för hafa slegist einhver græn furðu- og lukkudýr sem munu leggja okkur lið við að hvetja lið skólans til dáða.
Í skólahreystisliðinu eru: Andri Snær Tryggvason, Dalmar Snær Marinósson, Freyja Kolbrá Stefánsdóttir og Guðný Rúna Vésteinsdóttir. Til vara eru Ásta Aliya Friðriksdóttir og Kristmar Helgi Jónsson. Liðsstjóri og þjálfari er Sigurlína Hrönn Einarsdóttir íþróttakennari.
ÁFRAM VARMAHLÍÐARSKÓLI!!!