Skólahreysti - áfram Varmahlíðarskóli!

Næstkomandi miðvikudag verður undankeppni í Skólahreysti haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri kl. 13:00. Þá fara nemendur í 8. - 10. bekk norður til að styðja okkar fólk í keppninni. Að venju verður ferðin nýtt í skólaheimsóknir  hjá nemendum 10. bekkjar, en þeir fara í kynningar til VMA og MA. Á meðan skella nemendur í 8. og 9. bekk sér í keilu. Eftir keppnina fara allir út að borða á veitingastaðinn Greifann. 

Á síðunni krakkaruv.is er hægt að finna myndbandskynningar af liðum, þar á meðal Varmahlíðarskóla.