Skólahreysti

Það voru 45 nemendur og fjórir starfsmenn skólans, sem samfögnuðu í Laugardagshöll sl. föstudagskvöld. Það að komast í úrslit á landsvísu og ná 8. besta árangri er þess virði að fagna vel og lengi. Vésteinn, Fríða Isabel, Sigfinnur og Rósa Björk sýndu mikla yfirvegun og dugnað þegar á hólminn var komið. Það er ekki sjálfgefið þegar hundruð manna eru samankomin og alþjóð að horfa á í sjónvarpi. Innkomuliðið var skipað ofantöldum keppendum ásamt Einari og Sigríði Vöku varakeppendum. Þá má ekki gleyma lukkudýrinu Helga Fannari krókódíl og lukkuálfinum Margréti.  Hér má sjá mynd frá keppniskvöldinu.