Síðasta vika fyrir jól

Miðvikudaginn 17. des er Jólabíó kl. 12:40-14. Þá verða stuttmyndir úr stuttmyndagerðarvali sýndar.

Fimmtudaginn 18. des hefst dagurinn á rökkurgöngu kl. 8:20.  Nemendur eru hvattir til að klæða sig vel þann dag.
Kl. 12:40 er söngstund og úrslit í kökuhúsakeppninni verða kynnt.
Heimakstur er kl. 13:20.
Kl. 14:00 hefst svo jólaball Birkilundar.

Föstudaginn 19. des eru litlu-jólin. Skólinn hefst kl. 10:00 og er heimakstur kl. 12:30.  

Jólaleyfi er þá hafið en nemendur mæta svo á nýja árinu mánudaginn 5. janúar 2015.