Nýtt skólaár og nýr skólastjóri

 Ég hlakka til að vinna með ykkur öllum og fá að vera þátttakandi og hluti af metnaðarfullu skólasamfélagi Varmahlíðarskóla. 

Miðvikudaginn 19. ágúst verður allt starfsfólk skólans komið til starfa. Þá sameinast kraftar allra í undirbúningi fyrir komandi skólaár. Skólasetning verður síðan miðvikudaginn 26. ágúst kl 16:00. Ef veður leyfir verðum við utandyra. Nánar auglýst síðar.

Með góðum kveðjum og von um gott samstarf.

Hanna Dóra Björnsdóttir