Nemendur afhenda eina miljón króna

Áður en afhendingin fór fram skokkaði þorri bekkjanna tveggja niður að Lauftúni en þar tók fréttamaður Sjónvarpsins viðtöl við nokkur þeirra. Síðan hljóp hópurinn aftur upp að skóla þar sem allir nemendur og starfsfólk tóku á móti þeim. Einnig voru mættar Dalla Þórðardóttir, varaformaður krabbameinsfélagsins sem og Gígja Sigurðardóttir, gjaldkeri.  Fengu þær afhentar ávísun upp á áðurnefnda miljón og voru að vonum afar ánægðar með krakkana. Hér má sjá myndir.