Maraþon 10. bekkjar yfirstaðið

Teknar voru ótal myndir frá upphafi til enda, en eins og margir vita var markmiðið með maraþoni ekki aðeins hreysti, úthald og skemmtun. Vikum fyrir maraþonið söfnuðu nemendur áheitum  fyrir viðburðinn sem fjáröflun til Danmerkurferðar 10. bekkjar og þegar allir hafa sofið úr sér vökunóttina fara þeir sömu af stað til að sækja áheitin.