Þrjár sýningar eru fyrirhugaðar á leikritinu Kjóllinn hennar Grýlu en höfundur þess er Þórvör Embla Guðmundsdóttir. Frumsýning verður á leikskólanum Birkilundi á þriðjudaginn, á miðvikudaginn fer svo hópurinn með verkið í Árskóla og síðan verður lokasýningin á litlu-jólunum í skólanum á fimmtudaginn.