Kvenfélag Seyluhrepps gefur veglega gjöf

Í síðustu viku komu þær systur Sigríður og Helga Sjöfn Helgadætur færandi hendi í Íþróttamiðstöðina. Styrkur kvenfélagsins hljóðar upp á 70.000 krónur og á að nota upp í kaup á vatnsvél fyrir íþróttahúsið en slíka vél hefur skort í Íþróttamiðstöðinni.