Kökugerðarkeppni í féló

Í félagsmálum s.l. fimmtudag, 10. október, var haldin kökukeppni milli bekkja. Hver bekkur bakaði og framreiddi eina köku. 9. bekkur bar sigur úr býtum með marengsbotnatertu með ávöxtum borin fram með Mars-súkkulaðisósu. 10. bekkur bakaði svampbotna með rjómakremi á milli og súkkulaðikremi á, en 8. bekkur skellti í sígilda súkkulaðiköku. Allar kökur kláruðust nær um leið og bakarar og Bryndís heimilisfræðikennari gáfu færi á smakki.