Keppt í Stíl og Rímnaflæði

þriðjudaginn 5.nóvember var haldin undankeppni í Stíl og Rímnaflæði í Húsi frítímans. Þátttakendur frá Varmahlíðarskóla voru Aron Ingi í Rímnaflæði og Stefanía, Sigríður, Kolbrún og Freyja í Stíl. Stóðu þau sig öll með sóma og gekk allt mjög vel. Aron vann Rímnaflæði og fer því í aðalkeppnina til Reykjavíkur 22.nóvember næstkomandi. Hópur úr Árskóla vann Stílkeppnina.