Hlaupið undir regnbogann

Um leið og Haukur íþróttakennari ræsti Norræna skólahlaupið kl. 12:30 byrjaði að rigna. Það var líkt og krakkarnir væru að hlaupa á eftir regnboganum því sólin var að brjótast í gegn. Það létti til þegar allir voru komnir í laugina eftir mismikið erfiði. Þeir hraustustu hlupu upp og niður Reykjarhólinn út að Vallhólma og aftur til baka. Góðir sprettir!