Heimsókn úr Hálsaskógi

Í morgun fengum við góða gesti í skólann.  Þar var á ferðinni leikhópur nokkurra 10. bekkinga frá Sauðárkróki sem sýndu okkur valin atriði úr leiksýningunni Dýrin í Hálsaskógi sem sýnd er um þessar mundir. Mikil ánægja var með komu dýranna sem heimsóttu yngstu nemendur inn í bekki eftir sýningu.