Árshátíð 1. til 6. bekkjar Varmahlíðarskóla verður haldin í Miðgarði fimmtudaginn 10. apríl nk. kl. 14. Nemendur setja upp leikritið Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Kaffihlaðborð verður í grunnskólanum að lokinni sýningu og er innifalið í miðaverðinu. Leikstjóri sýningarinnar er Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, leiklistarkennari og leikkona. Almennt miðaverð kr. 2000,-.