Fínerí í féló 24. október

Anna Lilja frá Móðins kom með nýjustu tísku í hárgreiðslu og Þórdís frá Hofdölum sýndi nýjustu strauma í förðun. Þær greiddu og förðuðu hátt í 30 krakka á tveimur og hálfum klukkutíma. Nokkrir drengir skruppu í KS Varmahlíð og náðu sér í háralit í spreyformi sem Anna Lilja setti svo í þá við mismikla hrifningu. Einnig var mikið spáð og spekulerað í förðunarlistinni, bæði af strákum og stelpum, strákarnir þó sérstaklega hrifnir af augnhárabrettaranum. Allt gekk vel og allir skemmtu sér konunglega.