80 ára vígsluafmæli sundlaugarinnar í Varmahlíð

Fimmtudaginn 29. ágúst kl. 14:00-15:30 verður haldið upp á 80 ára vígsluafmæli sundlaugarinnar í Varmahlíð. Nemendur Varmahlíðarskóla eru þátttakendur í afmælishátíðinni og hafa síðustu daga komið að undirbúningi. Boðið verður upp á skemmtun fyrir augu og eyru. Einnig verða kaffiveitingar. Í framhaldi af afmælinu verður keppt í Grettissundi (500 metra sund með frjálsri aðferð). Skráning hjá Línu í síma 861 6801. 

Dagskráin hefst kl. 14:00 með skrúðgöngu frá Varmahlíðarskóla, örstutt ræðuhöld, saga sundlaugarinnar, söngur og dans. Áætlað að Grettissund hefjist kl. 15:30.

Allir velkomnir!