Gönguferð í góða veðrinu

Í gær, 7. maí, fóru nemendur í 1.-2.bekk og skólahópur leikskólans (Mánahópur) í gönguferð ásamt starfsfólki. Gengið var á Reykjarhólinn, með viðkomu á góðum áningarstöðum á leiðinni þar sem nesti var snætt og bryddað upp á leikjum
Göngugarpar fengu æðislegt veður og skemmtu sér afar vel í ferðinni.