Dans dans dans!

Eftir þriggja daga danskennslu allra nemenda var haldin glimrandi danssýning í íþróttahúsinu undir stjórn danskennarans Ingunnar Hallgrímsdóttur frá Dalvík.  Dansarnir voru margir og fjölbreyttir og endaði svo sýningin á að nemendur buðu foreldrum sínum upp í allsherjar hópdans, sem sést á myndunum.