Bakað í féló

Eins og myndirnar sýna ríkti mikil gleði við baksturinn og var súkkulaðið allsráðandi í eldhúsinu. Að loknum bakstri tók dómnefnd við störfum sem smakkaði allar kökurnar og kvað síðan upp sinn dóm. Sigurvegarar voru nemendur í 10.bekk. Síðan var þrammað með kökurnar inn í matsal þar sem allir fengu að gæða sér á gómsætum kökum með  matnum.  Á myndasíðunni má einnig sjá myndir frá félagsmálum þann 5. febrúar en þá heimsóttu féló förðunarfræðingur og hárgreiðslumeistari með tilheyrandi útlitsbreytingum á fólki.