Þrátt fyrir að veðrið sé að stríða okkur stefnum við að árshátíð 1.-6. bekkjar á morgun, fimmtudaginn 23. nóv. kl. 16:30 í Menningarhúsinu Miðgarði. 1.-2. bekkur verður með íþróttaálfasprell og 3.-6. bekkur sýnir leikritið Í Ævintýralandinu, þar sem gömlu ævintyrin eru fléttuð saman á óvæntan hátt. Höfundur: Ásthildur Cesil Þórðardóttir.
Kaffiveitingar í Miðgarði að lokinni sýningu.
Aðgangseyrir kr. 2000 fyrir 16 ára og eldri og kr. 1000 fyrir börn á grunnskólaaldri utan Varmahlíðarskóla (tökum ekki við greiðslukortum).
Frístundastrætó frá Sauðárkróki og Hofsósi, skráning á husfritimans1@skagafjordur.is
Allir velkomnir, aðeins þessi eina sýning.