Árshátíð 1.-6. bekkjar í Miðgarði

Árshátíð yngri nemenda í Varmahlíðarskóla verður haldin í Miðgarði, föstudaginn 4. mars kl. 15:00. Nemendur 1.-6. bekkjar sýna leikritið Hróa Hött eftir handriti Guðjóns Sigvaldasonar. Leikstjóri er Helga Rós Sigfúsdóttir og Stefán R. Gíslason sér um undirleik. Kaffiveitingar í Miðgarði að lokinnni sýningu. Aðgangseyrir: kr. 2000 fyrir 16 ára og eldri og kr. 1000 fyrir nemendur á grunnskólaaldri utan Varmahlíðarskóla (tökum ekki við greiðslukortum). 

Allir velkomnir!