Allt í plati!

Leikritið er stórskemmtileg blanda af þekktum ævintýrum eftir Astrid Lindgren og Thorbjörn Egner, en það er Lína Langsokkur sem er í aðalhlutverki.  Í grallaraskap galdrar Lína fram sínar uppáhaldssögupersónur úr ævintýrunum og þá má búast við óvæntum atburðum með söng og dansi.