Afreksfólk í frjálsum íþróttum í Varmahlíðarskóla

Sjö meðlimir UMSS komust í úrvalshóp FRÍ, en alls völdust 91 einstaklingur alls staðar af landinu. Eins og sést á eftirfarandi lista eru sex af sjö nemendum úr Varmahlíðarskóla, þ.m.t. einn sem lauk grunnskólaprófi í fyrra.

Eftirfarandi Skagfirðingar komust í úrvalshópinn:

  • Vala Rún Stefánsdóttir               (1999)
  • Hrafnhildur Gunnarsdóttir            (1998)
  • Fríða Isabel Friðriksdóttir            (1998)
  • Einar Örn Gunnarsson                (1998)
  • Haukur Ingvi Marinósson             (1998)
  • Þorgerður Bettina Friðriksdóttir    (1996)
  • Jóhann Björn Sigurbjörnsson       (1995)

Óskum þeim innilega til hamingju með þennan árangur.  Hægt er að sjá frétt á Feyki.is.