3. bekkur lærir um gömlu mánaðaheitin

Nemendur lærðu um gömlu  mánaðaheitin í gegnum margvíslegan texta og unnu m.a. verkefnið sem sést á myndinni.  Varmahlíðarskóli hefur notast við aðferðir Byrjendalæsis í nokkur misseri, en meginmarkmið  þess er  að  börn  nái  góðum  árangri  í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni.